Eins og þið kannski vitið þá er farið að styttast í þessa brottför
mína. Og líka prófin. ómæómæ!
En vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að setja inn endanlegt
(vonandi... samt ekki alveg 100%) plan. svo hér kemur það!
23. jan - síðasta prófið

28. jan - Akureyri-Reykjavík
1.febrúar- Reykjavík- Keflavík. Keflavík-New York
2. febrúar- New York-Miami. Miami-San Jose.
4. febrúar- San Jose-Paraíso.
Þar hafiði það! Svo er ég farin að efast um kveðjuteiti. Samt ekki
viss. Ef það verður þá verður þar 26.jan.
Annars verður bara smá kveðjustund 27.jan
Og já. Ætli þetta sé ekki bara síðasta bloggið á þessari síðu í
bili!

Belív it or not! Sem er kannski í lagi því þetta er orðin
svoldið slöpp síða. Þó Gúmbi standi nú alltaf fyrir sínu!
Allavegana verð ég með aðra síðu úti. Auglýst síðar

Vona bara að
ég komist í tölvu einhvers staðar úti til að blogga og fara á msn
og svona

Og vonandi get ég sett inn myndir líka!
En jæja ég ætla að halda áfram með lærdóminn. Jiiibbíjeii
Kveð þá bara í síðasta sinn í bili á gumbanum
Hildur